Hoppa í aðalefniHoppa á efni
Vefapp · SpjallmenniSérsmíðað · Persónueinkenni

Spjallmenni sem passa vörumerkinu.

Persóna

Þetta er Edda, okkar eigin spjallþjónustufulltrúi. Hún býr neðst í hægra horninu á þessari síðu og svarar spurningum um Vefapp á íslensku, ensku eða því tungumáli sem þú kýst að skrifa á. Smelltu á kúluna til að prófa.

Inngangur

Við smíðum sérsniðin spjallmenni sem búa inni í þinni eigin síðu, ekki utanaðkomandi viðbót. Persónan, röddin og varnaglar eru valdir samhliða hönnuninni og spjallmennið flettir upp í þínum eigin gögnum (vörulista, þekkingargrunni eða skjölum) áður en það svarar. Notandinn fær svar með tilvísunum, þú heldur stjórn á tóni og umfangi.

Hvernig það virkar

01

Greining

Við skoðum gögnin sem spjallmennið á að þekkja, hvaða spurningum það á að svara, og hvar mörkin eiga að vera. Niðurstaðan er stutt umfangsskjal sem allt liðið samþykkir áður en þróun hefst.

02

Persóna

Nafn, rödd, tónn og synjunarreglur. Evín á amka.is er vínráðgjafi, ekki sjálfvirkt sölukerfi, og segir því kurteislega nei við spurningum sem hún á ekki að svara. er skrifað eins og leiðbeiningar fyrir starfsmann, ekki sem regex.

03

Svarar út frá þínum gögnum

Spjallmennið flettir upp í þínum eigin gögnum, vörulista, PDF-skjölum, hjálparsíðum, hverju sem þú vilt að það kunni, áður en það svarar. Þegar einhver spyr finnur það fyrst réttu upplýsingarnar í grunninum þínum og vitnar svo beint í upprunann, líkt og starfsmaður sem flettir í handbókinni áður en hann svarar. Engar tilbúnar staðreyndir, bara raunverulegt efni úr þínum eigin gögnum. Aðferðin heitir (Retrieval-Augmented Generation) á tæknimáli.

04

Samþætting

Spjallmennið býr inni í síðunni þinni, sömu litir, sama letur, sami tónn. Streymandi svör, varaleið yfir í tölvupóst þegar er ekki viss, mælaborð fyrir samtöl og prompt-stillingar fyrir starfsfólkið svo þú getur fínstillt án þess að deploya.

Hvað fylgir

  1. 01Sérsniðin persóna með nafni, rödd og synjunarreglum
  2. 02Uppfletting í þínum eigin gögnum ( eða annar þekkingargrunnur)
  3. 03Tilvísanir í upprunalegar línur (engar rangtúlkanir)
  4. 04Streymandi svör, notandinn sér orðin koma jafnóðum
  5. 05Varaleið í tölvupóst þegar spjallmennið er ekki visst
  6. 06Þemaaðlagað viðmót sem fylgir ljóst/dökkt val notandans
  7. 07Stillanlegt system prompt, þú breytir tóni án nýrrar útgáfu

Dæmi

Amka

Evín, vínráðgjafi

Sérsmíðað spjallmenni grundvallað á öllum vörulistanum hjá Amka, yfir þúsund vín, framleiðendur, svæði og matarpörun. Notandinn spyr „hvaða rauðvín passar með lambi“ og Evín svarar með beinum tilvísunum í vínin í listanum.

Skoða dæmisögu →
Vegferð

Pörun umsækjenda og starfa

tengt beint við starfslistann og umsækjendaprófíla á Vegferð. Niðurstaðan er ekki spjall heldur ráðlegging, kerfið parar saman umsækjendur og störf á grundvelli færni og óska, með skýringu fyrir hverja pörun.

Skoða dæmisögu →

Stakkur

  • Claude (Anthropic)
  • RAG
  • Embeddings
  • Vector search
  • Supabase Postgres
  • Streymandi svör
  • Server-rendered viðmót

Næst

Áttu vörumerki sem á skilið sína eigin rödd?

Sækja tilboð →