Sér gervigreindin vefsíðuna þína?
Ný umferð
Sífellt fleiri heimsóknir koma ekki frá manneskju sem skrollar, heldur frá gervigreind sem les vefinn fyrir hana. ChatGPT, Gemini, Perplexity og nýir vafrar leita, bera saman og bóka fyrir notandann. Ef vefurinn þinn er byggður fyrir augað eitt saman er hann að mestu ósýnilegur þessum lesendum. Við byggjum vefi sem bæði fólk og vélar skilja.
Hvað er snjallvöfrun?
Snjallvöfrun () er þegar gervigreind vafrar um vefinn í umboði notandans: les síður, dregur út staðreyndir, ber saman valkosti og framkvæmir aðgerðir eins og að fylla út form eða panta. Google mælir þetta nú beint í með nýjum flokki, Agentic Browsing, sem skoðar hvort vélar geti í raun lesið og notað vefinn. Þetta er sama hugsun og aðgengi: það sem gerir vef læsilegan fyrir skjálesara gerir hann líka læsilegan fyrir gervigreind.
Hvað gerir vef véllæsilegan
llms.txt
Lítil textaskrá í rót vefsins sem virkar eins og kort fyrir mállíkön: hún segir gervigreindinni hvað vefurinn er og vísar á mikilvægustu síðurnar. Eins og robots.txt, en fyrir . Við afhendum hana með hverjum vef.
Server-rendering og merkingarbært HTML
Gervigreind les og aðgengistréð, ekki myndina á skjánum. Vefur sem teiknar allt efnið með í vafranum er oft auður fyrir vélinni. Við forrenderum efnið á vefþjóninum með réttum fyrirsögnum og merkingu, svo það er til staðar strax.
Formföst gögn
Schema.org og lýsa því hvað hlutirnir á síðunni eru: fyrirtæki, vara, verð, dómur, spurning og svar. Þannig getur gervigreindin skilið samhengið í stað þess að giska, og vísað rétt í efnið þitt.
Aðgengi sem vélar treysta á
Vel formað , réttar fyrirsagnaraðir og lýsingar á myndum og hnöppum. Sama vinna og hjálpar fólki með skjálesara gerir vefinn skiljanlegan fyrir gervigreind, og telur beint í .
WebMCP
Nýr staðall sem gerir vefnum kleift að birta aðgerðir sínar, form og verkfæri á þann hátt sem gervigreind getur beitt á öruggan hátt, í stað þess að giska á hnappa. Þannig getur umboðsgreind ekki bara lesið vefinn heldur líka notað hann.
Hraði og stöðugt útlit
Vélar, rétt eins og fólk, gefast upp á hægum vef. Hröð fyrsta birting og útlit sem hoppar ekki til (lágt ) skipta máli fyrir bæði gesti, Google og nýja Agentic Browsing flokkinn.
Hvernig við gerum það
Þetta er ekki viðbót sem við seljum sérstaklega, heldur hluti af því hvernig við byggjum. Hver vefur er forrenderaður á með merkingarbæru , formföstum gögnum og frá fyrsta degi. Þessi vefur, vefapp.is, fær fullt hús stiga (3/3) í Agentic Browsing flokki , því við byggjum hann eftir sömu reglum og við bjóðum þér.
Sjá einnig
Næst
Er vefurinn þinn tilbúinn fyrir gervigreind?
Settu slóðina þína í ókeypis vefskönnun, eða hafðu samband og við förum yfir hvað þarf.