Hoppa í aðalefni
Vefapp · API-tengingarSamtenging · 2026

Vefurinn þinn talar við hin kerfin þín.

Inngangur

Vefur er sjaldan eyland. Pantanir þurfa sendingar. Viðskiptavinir vilja staðfestingu í SMS. Reikningar þurfa að rata í bókhaldið. Við smíðum þessar tengingar inn í vefforritið frá fyrsta degi. Engar handvirkar millifærslur, engar viðbætur sem brotna við næstu uppfærslu og engin milliliðakerfi sem geta rofnað án viðvörunar.

Tengingar sem við smíðum

01Sendingar

Íslandspóstur API

Sjálfvirk gerð sendinga, prentun burðargjalda og rakning í rauntíma. Þegar pöntun er staðfest verður sendingarnúmer til og viðskiptavinurinn fær slóð til að fylgjast með pakkanum. Allt gerist án handvirks eftirlits.

  • Sjálfvirk sendingakerfi fyrir netverslanir
  • Stöðu-uppfærslur úr pósturinn.is inn í stjórnborð
  • Útprentanleg burðargjöld beint úr pöntunarflæði
02Skilaboð

1819 SMS API

Sjálfvirkar SMS-sendingar fyrir staðfestingar, áminningar og tilkynningar. 1819.is er íslenska SMS-gáttin. Afhending er hröð og kostnaðurinn stöðugur. Engin erlend SMS-þjónusta sem skilur ekki íslensk símanúmer.

  • Staðfesting á bókun eða pöntun
  • Áminningar á tímabókanir með afpöntunarhlekk
  • Tveggja-þátta auðkenning fyrir innri kerfi
03Bókhald

Payday API

Reikningar verða til sjálfkrafa úr vefnum þínum, beint í Payday. Engar Excel-skrár, ekkert handvirkt innslag og engar gloppur milli vinnu og innheimtu. Þegar pöntun er staðfest eða þjónustulota klárast verður reikningurinn til um leið, með réttum vsk-flokkum og réttri kennitölu.

  • Sjálfvirk reikningagerð úr netverslun eða tímabókun
  • Áskriftarreikningar með endurnýjun á réttum dögum
  • Reikningar fyrir verkefnamiða í innri kerfum
04Opin tenging

Annað API að þínu vali

Höfum við ekki tengt það nú þegar? Þá gerum við það núna. Greiðslukerfi (, ), bókunarkerfi (Calendly, Cal.com), birgðakerfi eða þinn eigin gagnagrunnur. Allir REST- og GraphQL-endapunktar eru meðhöndlaðir með SDK í kóðagrunninum og birtast í stjórnborðinu þínu.

  • Teya fyrir kortagreiðslur
  • Microsoft Graph fyrir Office-skjöl og Outlook
  • Sérsmíðaðar tengingar við þína eigin bakenda

Dæmi

Wiim Home

Sjálfvirk staðfestingar- og reikningaflæði fyrir netverslun; sendingar í gegnum Íslandspóst.

Datatech

Innra verkbeiðnakerfi sem talar við tölvupóst, SMS og innra bókhald, án handvirkrar afritunar á milli kerfa.

Tengingar

Þau íslensku og alþjóðlegu kerfi sem við tengjumst beint úr vefnum þínum.

Tæknistakkur

  • REST API
  • GraphQL
  • Webhooks
  • type-safe SDK
  • Server actions
  • Server-Sent Events
  • Edge runtime

Algengar spurningar

01

Hvað kostar tenging?

Það fer eftir -i og hversu djúpa virkni þú þarft. Sumar tengingar (Íslandspóstur, 1819) eru komnar í verkefnastakkinn okkar og taka örfáa daga. Sérsmíðaðar tengingar við flóknari bakenda taka lengri tíma. Sendu okkur tilboðsbeiðni og við sendum verðmat innan tveggja virkra daga.

02

Þarf ég sjálf/ur að halda utan um API-lyklana?

Nei. Við setjum lyklana í environment variables á , með aðgangsstýringu og snúningi. Þú sérð aldrei lykla í kóðagrunninum og þeir lenda aldrei í Git.

03

Hvað ef API-ið breytist?

Við skrifum tengingar með SDK þannig að breyting í -i kemur fram sem build-villa, ekki sem þögul bilun í framleiðslu. Auk þess vöktum við vefinn með heilsuskoðunum (health checks) og fáum tilkynningu áður en notendur taka eftir vandamálinu.

04

Get ég sjálf/ur stjórnað hvaða gögn fara út úr kerfinu?

Já. Allar sendingar eru loggaðar í með aðgangsstýringu. Stjórnborðið sýnir nákvæmlega hvaða gögn fóru til hvers og hvenær. Persónuverndin er ekki valfrjáls, við hönnum hana inn í kerfið frá grunni.

Sjá einnig

Næst

Tengjum það sem þú ert nú þegar að nota.

Fáðu tilboð →