Við umbreytum áskorunum
í stafrænan árangur.
Um okkur
Vefapp.is er hugbúnaðardeild Datatech ehf. Við hönnum og byggjum vefi og vefforrit fyrir frumkvöðla, lítil teymi og rótgróin fyrirtæki sem vilja gera hlutina faglega.
Við byrjum á vandamálinu, ekki tækninni. Við setjum okkur inn í reksturinn, finnum hvar hugbúnaður getur létt undir og smíðum kerfi sem er sniðið að þinni vinnu, við notum aldrei tilbúin sniðmát sem passa almennt ekki við þarfir fyrirtækja eða við þeirra vörumerki. Áherslurnar eru skýrar: stílhrein hönnun, sýnileiki á leitarvélum, samhæfni við og W3C aðgengistaðla, hraði, öryggi gagna og sanngjörn verðlagning.
Áætlanir okkar eru raunhæfar og gagnsæjar. Þegar verkefni er vel skilgreint bjóðum við fast verð. Við fylgjum hverju verki eftir og hýsum í gagnaverum í Evrópu sem uppfylla alla staðla eins og , , PCI-DSS.
Við byggjum lausnirnar aðallega á Next.js og hýsum hjá Vercel, sama tæknistakk og fyrirtæki á borð við Nike, LG, The Washington Post, Virgin og Target treysta á.
Þjónusta
Stefnumótun og ráðgjöf
Með áratuga reynslu hjálpum við fyrirtækjum að greina áskoranir í rekstri og finna réttar leiðir til framfara. Við aðstoðum við forgangsröðun og val á tækni og lausnum sem henta þínum verkefnum.
Heildstæð vöruþróun
Við leiðum ferlið frá fyrstu greiningu að fullbúinni vöru. Með samþættingu notendaupplifunar og viðskiptamarkmiða búum við til lausnir sem fólk raunverulega notar.
Þjónusta og eftirfylgni
Við tryggjum rekstraröryggi og stöðuga framþróun með fyrirbyggjandi þjónustu sem felur í sér mánaðarlegar öryggisuppfærslur svo kerfin þín séu ávallt örugg, uppfærð og tiltæk.
Lausnir
Sérhönnuð ofurhraðvirk vefsíða
Við byggjum á og hýsum vefsíðuna eða appið þitt hjá . Ef þörf er á gagnagrunni notum við , sami tæknistakkur og fyrirtæki á borð við Nike, LG, The Washington Post, Virgin og Target nota fyrir sínar vefsíður.
Skoða veflausnir →Leitarvélabestun (SEO)
Þegar einhver leitar á Google að því sem þú selur viltu birtast ofarlega. Efstu sætin í lífrænni leit kosta ekkert, og flestir viðskiptavinir byrja einmitt þar. Þeir treysta niðurstöðum sem virðast sjálfsprottnar fremur en auglýsingum. Og þeir smella á síður sem hlaðast hratt og líta fagmannlega út. Við byggjum allt sem til þarf inn í kjarna síðunnar frá fyrsta degi, svo fyrirtækið þitt finnist þar sem fólkið er nú þegar að leita.
Skoða SEO-þjónustu →Snjallmenni
Sérsmíðuð gervigreindarsnjallmenni, með sín eigin persónueinkenni, rödd og nákvæma þekkingu á þínum vörum eða þjónustu. Evín-snjallmennið á amka.is er gott dæmi: vínráðgjafi sem þekkir öll vínin og hvaða matur passar með þeim. Byggður á og notar yfir .
Skoða snjallmenni →Gervigreind
Við sérsmíðum gervigreind inn í vefsíðuna þína, sniðna að þínu fyrirtæki og þínum reglum. Hún passar við vörumerkið þitt í stað þess að líta út eins og aðkeypt viðbót, eins og algengt er í . Allt frá snjallri leit sem skilur samhengi til sjálfvirkrar flokkunar og útdráttar úr skjölum og gagnagrunnum. Lausnin keyrir ýmist á með eða Agentic yfir , eða ónettengd á Nvidia-vélbúnaði fyrir þá sem treysta ekki nettengdum gervigreindarþjónustum.
Skoða gervigreindarlausnir →Greining
Viltu greina núverandi vefinn þinn?
Prófaðu skannann →Staðlar og traust
Vefur sem við afhendum þarf að standast tvo staðla, annan fyrir aðgengi, hinn fyrir öryggi gagna. Hvorugur er valfrjáls.
WCAG 2 AA aðgengi
Allar síður sem við smíðum standast , alþjóðlegan aðgengisstaðal W3C: nægileg litabirta, full lyklaborðsstýring, skjálesarasamhæfi og merkingar sem hjálpartæki skilja. Þetta er ekki bara fyrir notendur með skerðingar. Það gerir vefinn líka læsilegri í sólskini, í strætó og fyrir hvern þann sem hefur lítinn tíma. Evróputilskipun um aðgengi vöru og þjónustu (EAA, 2019/882) hefur verið í gildi frá 28. júní 2025 og gerir staðalinn að skyldu fyrir mörg neytendamiðuð kerfi.
Vercel · ISO/IEC 27001 vottun
Við hýsum öll verkefnin okkar á , sem er með ISO/IEC 27001 vottun fyrir upplýsingaöryggisstjórnkerfi (). Það þýðir að innviðirnir sem þjóna vefnum þínum fara í gegnum óháðar úttektir á öryggisstefnu, aðgangsstýringu, áhættumati og atvikastjórnun, staðallinn sem ríki, bankar og fjölmargar stofnanir krefjast af hýslum sínum.
Samstarf
Þegar verkefni krefst meira en tæknilegrar útfærslu vinnum við í samstarfi við Manhattan, markaðsráðgjafarstofu með áratuga reynslu af stefnumótun, markaðsstjórnun og markaðssamskiptum. Saman bjóðum við viðskiptavinum okkar heildarpakka þar sem stefna, markaðsstarf og tæknilegur grunnur fara saman í eina lausn.
Markaðsleg stefnumótun og áætlanagerð
Markaðs- og samkeppnisgreining, markhópamiðun, mótun staðfærslu og markaðsstefnu, annaðhvort frá grunni eða sem uppfærsla á núverandi stefnu. Áætlanagerð fylgir með: skipulagning aðgerða, samval markaðsráða og kostnaðaráætlun.
Stjórnun auglýsingaherferða
Skipulagning og stjórnun markaðssamskipta gagnvart markhópum í gegnum fjölmiðla, vef og samfélagsmiðla, frá mótun skilaboða og framleiðslu efnis til birtingaáætlunar og fjölmiðlasamskipta.
Útvistuð markaðsstjórnun
Manhattan gengur í stöðu markaðsstjóra eða markaðsdeildar fyrir fyrirtæki sem vilja faglega stjórn án innanhúss ráðningar, eða framlengingu á eigin markaðsdeild með utanaðkomandi reynslu.
CRM, markaðsgreiningar og fræðsla
Innleiðing viðskiptatengsla (CRM) til að byggja upp langtímasambönd, reglulegar markaðsgreiningar og þjónustukannanir, og markaðsfræðsla fyrir lið viðskiptavina sem vilja byggja upp eigin þekkingu.
Næst
Ertu með áskorun í huga?
Hefja verkefni →