Hoppa í aðalefni
01 / 07 · Ríkisstofnun · Orkurannsóknir2026

isor.is

Nýr vefur Íslenskra orkurannsókna. ÍSOR er leiðandi íslenskt alþjóðlegt fyrirtæki sem veitir jarðvarmaiðnaðinum sérfræðiráðgjöf og tæknilega þekkingu á sviði jarðvísinda, bæði fyrir háhita- og lághitasvæði.

Yfirlit

ÍSOR, Íslenskar orkurannsóknir, er sjálfstæð ríkisstofnun sem rannsakar jarðhita, jarðfræði, grunnvatn og hafsbotn og veitir orkufyrirtækjum ráðgjöf hér heima og erlendis. Þetta er stærsta verkefni Vefapps til þessa og fyrsta ríkisstofnunin í verkefnasafninu. Gamli vefurinn keyrði á , enskan var sérstakt vefsvæði og starfsfólk gat litlu breytt sjálft. Við smíðuðum nýjan vef frá grunni á og , 396 forbirtar síður á íslensku og ensku. Í ritstjórnarkerfinu skrifar starfsfólk ÍSOR fréttir, verkefni, þjónustulýsingar og starfsmannaskrá sjálft. Kortasjá stofnunarinnar er hýst inni á vefnum. Vefurinn fór í loftið á isor.is 4. september 2026.

Ríkisstofnun · Orkurannsóknir

Þetta er bara skjáskot, betra að skoða síðuna sjálfa: isor.is

Dökkt þema

Þetta er bara skjáskot, betra að skoða síðuna sjálfa: isor.is

Fréttasafn

Þetta er bara skjáskot, betra að skoða síðuna sjálfa: isor.is

Frétt

Þetta er bara skjáskot, betra að skoða síðuna sjálfa: isor.is

Þjónusta, 14 flokkar

Þetta er bara skjáskot, betra að skoða síðuna sjálfa: isor.is

Þjónustusíða með tengilið

Þetta er bara skjáskot, betra að skoða síðuna sjálfa: isor.is

Kortasjá ÍSOR á forsíðunni

Þetta er bara skjáskot, betra að skoða síðuna sjálfa: isor.is

Starfsfólk, síað eftir sviðum

Þetta er bara skjáskot, betra að skoða síðuna sjálfa: isor.is

Jarðhitafróðleikur

Þetta er bara skjáskot, betra að skoða síðuna sjálfa: isor.is

Rannsóknarverkefni

Þetta er bara skjáskot, betra að skoða síðuna sjálfa: isor.is

Enska útgáfan

Þetta er bara skjáskot, betra að skoða síðuna sjálfa: isor.is

Leit í öllu efni

Áskorun

Gamli isor.is-vefurinn keyrði á ásamt fjölda brothættra viðbóta. Viðbætur eru smáforrit frá ólíkum höfundum, sett inn á vefinn til að bæta við hann leit, eyðublöðum, myndasöfnum, tólum og fleiru. Þær þurfti að uppfæra reglulega og þær eru jafnframt ein algengasta leið netglæpamanna inn í kerfi fyrirtækja og stofnana og eru þekktur öryggisgalli á . Enska útgáfan var sérstakur vefur á en.isor.is með færri síðum og slóðirnar fylgdu engri reglu. Skipuritið var mynd sem teikna þurfti upp á nýtt í hvert sinn sem starfsmannahópurinn breyttist. Stofnun sem birtir rannsóknir á tveimur tungumálum þarf aðgengilegan vef þar sem starfsfólk skráir sig inn og skrifar greinar og fréttir sjálft, án þess að þurfa að kalla til forritara. Opinber vefur þarf líka að uppfylla kröfur um aðgengi og persónuvernd. Gamlar slóðir í skýrslum og fræðigreinum verða að virka áfram eftir flutninginn.

Nálgun

Vefurinn keyrir á með forbirtum síðum ofan á -gagnagrunni, með aðgangsreglum () á hverri töflu. Íslenska og enska liggja hlið við hlið í einu kerfi með á hverri slóð. Ritstjórnarkerfið nær yfir fréttir, verkefni, þjónustu, starfsfólk, laus störf, forsíðuborða, útlitsstillingar og tilkynningar, auk myndabanka, fréttabréfs og innhólfs fyrir fyrirspurnir. Innskráning krefst -kóða og gagnagrunnurinn sjálfur gerir greinarmun á stjórnendum og ritstjórum. Efnið fluttum við inn með forskriftum: 92 fréttir, 14 þjónustuflokka, 12 verkefni og 52 starfsmenn. Við skráðum 166 gamlar slóðir af báðum vefjunum svo þær vísi á réttar síður á nýja vefnum. þjappar kortasjá ÍSOR í eina skrá sem er hýst á vefnum sjálfum. Sérsmíðaður vaktari athugar á klukkutíma fresti hvort kortaþjónarnir svara og lætur stjórnendur vita ef eitthvað bregst. Við smíðuðum forrit á Meta Graph og settum upp kerfisnotanda, svo ritstjóri getur hakað við að birta frétt einnig á Facebook og Instagram um leið og hún fer á vefinn. Deilimyndir verða til sjálfkrafa eftir forskrift, svo hver færsla fylgir útlitsreglum ÍSOR.

Niðurstaða

Lénið var fært yfir á nýja vefinn þann 4. september 2026. Starfsfólk ÍSOR sér nú um efnið sjálft og þarf ekki forritara til að framkvæma breytingar. Hver síða er tilbúin áður en gesturinn biður um hana, svo vefurinn opnast strax. Þegar ritstjóri vistar birtist breytingin strax á vefnum. Gömlu slóðirnar virka og enskan er jafngild íslenskunni. Ef eitthvað bilar lætur sjálfvirk vöktun vita á undan gestunum. Vefurinn fær fullt hús stiga hjá Google , bæði í farsíma- og vafraprófi.

Kortasjá

Kortasjá ÍSOR er gagnvirkt kort af jarðfræði Íslands, jarðhita, grunnvatni, jarðeðlisfræði og hafsbotni. Kortalögin skipta tugum og hún hefur sérstakan ham fyrir land og sjó. Kortateymi ÍSOR smíðar hana sjálft ofan á kortakerfi frá Esri. Vefapp aðlagaði kortasjána að vörumerki ÍSOR og felldi hana inn í nýja vefinn. Áður sótti kortasjáin hundruð smáskráa frá erlendum þjónum í hvert sinn sem einhver opnaði hana. Nú sækir hún þetta allt í einu lagi af isor.is og opnast hraðar. Kortagögnin sjálf koma áfram frá ÍSOR. Útlit vefsins og tungumálaval fylgja inn í kortasjána, svo hún er ekki lengur eins og utanaðkomandi viðbót á vefnum. Sjálfvirk vöktun sækir kortabút á klukkutíma fresti til að ganga úr skugga um að kortaþjónarnir svari.

Lykileiginleikar

  1. 01Tvímála ritstjórnarkerfi fyrir fréttir, verkefni, þjónustu, starfsfólk og laus störf
  2. 02Forsíðuborðar með mynd eða myndbandi og tilkynningar sem birtast og hverfa eftir tímasetningu
  3. 03Myndabanki með upphleðslu og myndasöfnum, forskoðun draga á vefnum sjálfum
  4. 04Þýðingarhnappur með Opus 5: enskt uppkast úr íslenskunni, ritstjóri les yfir og vistar
  5. 05Kortasjá ÍSOR hýst inni á vefnum, þjöppuð úr með
  6. 06Deiling frétta á Facebook, Instagram og LinkedIn beint úr ritlinum, valið fyrir hverja grein
  7. 07Fréttabréf með tvöfaldri staðfestingu og innhólf fyrir fyrirspurnir með afriti í pósthólf ÍSOR
  8. 08Vaktari á klukkutíma fresti: kortaþjónar, tölfræðiþjónusta, póstlén og lyklar samfélagsmiðla
  9. 09Eigin vefmælingar án vafrakaka, teknar saman í fyrir skýrslur stjórnenda
  10. 10Lifandi tölur af mælingagrunni ÍSOR á forsíðunni: borholumælingar, metrar og efnasýni ársins
  11. 11166 gamlar slóðir af isor.is og en.isor.is vísa rétt, 404-vöktun grípur afganginn
  12. 12Ljóst og dökkt þema, og hléhnappur á forsíðuborðanum

Ritstjórn

  1. 01Íslenska og enska hlið við hlið í sama formi, með drögum og birtingu, og engin ný útgáfa þarf að fara í loftið til að vista
  2. 02Ritill fyrir meginmál sem geymir einfaldan texta en ekki , svo ekkert aðskotaefni kemst inn á síðuna
  3. 03Forsíðuborðar með mynd eða myndbandi og valfrjálsu birtingartímabili, til dæmis fyrir viðburð
  4. 04Tilkynningaborði sem kviknar og slokknar sjálfkrafa á tímasetningu
  5. 05Myndabanki: upphleðsla, endurnotkun og myndasöfn með myndatextum í fréttum og verkefnum
  6. 06Þýðingarhnappur: Opus 5 skrifar enskt uppkast í sömu reiti, ritstjóri les yfir og vistar, aldrei sjálfvirkt
  7. 07Forskoðun draga á vefnum sjálfum áður en birt er
  8. 08Skipanavalmynd með Ctrl+K sem hoppar milli allra hluta stjórnborðsins

Öryggi

  1. 01-kóði skylda við hverja innskráningu og staðfestur aftur í hverri aðgerð á netþjóni
  2. 02 á sérhverri töflu: almenningur les aðeins birt efni og drög sjást aldrei
  3. 03Hlutverk stjórnanda og ritstjóra skilin að í gagnagrunninum sjálfum, ekki bara í viðmótinu
  4. 04Innskráning rennur út eftir sólarhring og eftir tíu mínútna aðgerðaleysi, hreinsar gamlar lotur inni í auðkennisgrunninum
  5. 05 í fullri virkni á öllum vefnum, með rýmri útgáfu fyrir kortasjána eina
  6. 06Fjöldatakmörkun á formum í , IP-tölur aðeins geymdar sem saltaðir hashar
  7. 07Sjálfvirk eyðing persónuupplýsinga eftir geymslutíma persónuverndarstefnunnar: fyrirspurnir eftir 24 mánuði, afskráningar eftir 6
  8. 08Framleiðslubygging neitar að fara í loftið ef nauðsynlegar stillingar vantar
  9. 09Vafrakökusamþykki í fjórum flokkum, gögn hýst innan Evrópu

Leitarvélar og flutningur

  1. 01Gömlu slóðirnar kortlagðar úr skriði á isor.is og en.isor.is: 166 slóðir, 84 fastar reglur og uppfletting í gagnagrunni fyrir gamlar fréttaslóðir
  2. 02Tvímála sitemap með , RSS á báðum málum, robots og canonical á hverri síðu
  3. 03 fyrir stofnunina, þjónustu, fréttir sem BlogPosting og brauðmola
  4. 04 fyrir hverja síðu og sérstakt 4:5 JPEG-kort fyrir Instagram
  5. 05-tilkynning og staðfestingarkóðar leitarvéla stillanlegir í stjórnborðinu
  6. 06404-vöktun með einnar-smellu vísun og 301/302 reglur úr gagnagrunni í millilaginu
  7. 07Gestir utan Íslands fá ensku við fyrstu heimsókn, leitarvélar sjá íslenskuna sem aðalútgáfu
  8. 08Lénaskiptin æfð fyrirfram: forskrift endurspilar um 200 vísanir gegn vefnum fyrir og eftir flutning

Rekstur og vöktun

  1. 01Vaktari keyrir á klukkutíma fresti og lætur kortaþjóna ÍSOR teikna raunverulegt kortabrot, ekki bara skila lýsigögnum
  2. 02Sami vaktari athugar tölfræðiþjónustuna, hvort póstlénið sé enn vottað hjá og hvort lyklar samfélagsmiðla séu gildir
  3. 03Ein tilkynning þegar eitthvað bilar, dagleg áminning meðan það stendur og ein þegar það lagast
  4. 0490 daga saga allra athugana á vöktunarsíðu stjórnborðsins
  5. 05Óvæntar villur á netþjóni eru tilkynntar sjálfkrafa með rekjanlegu auðkenni
  6. 06Fyrsta-aðila vefmælingar án vafrakaka og án IP-talna, teknar saman með -falli
  7. 07Byggingin fellur ef opinberar síður hætta að forbirtast, og CI keyrir gerðarprófun, ESLint, 23 prófaskrár í og byggingu fyrir hverja sameiningu

Samfélagsmiðlar og fréttabréf

  1. 01Deiling á Facebook, Instagram og LinkedIn beint úr fréttaritlinum, hakað við fyrir hverja grein
  2. 02Instagram fær sérstakt 4:5 kort með mynd greinarinnar, gert á netþjóninum
  3. 03Hver tilraun er skráð áður en hún fer út, svo endursending tvítekur aldrei færslu
  4. 04Fréttabréf með tvöfaldri staðfestingu, undirrituðum afskráningartengli og sendingasögu
  5. 05Innhólf fyrir fyrirspurnir með stöðu, afriti í pósthólf ÍSOR og kvittun til sendanda
  6. 06Allur póstur fer um af isor.is með DKIM-undirskrift, svo póstur ÍSOR lendi ekki í ruslpósti

Hraði og aðgengi

  1. 01396 síður forbirtar við byggingu og afgreiddar af CDN, endurnýjaðar sjálfkrafa þegar ritstjóri vistar
  2. 02Myndir í WebP í réttri stærð fyrir hvert tæki, ekkert hopp í útlitinu
  3. 03Kortasjáin sækir engan kóða af CDN Esri: ein 378 KB skrá og modulepreload á allt kóðagrafið
  4. 04Letur hýst á vefnum sjálfum, engin köll til Google Fonts
  5. 05Lyklaborðsvænar valmyndir, hlekkur beint í aðalefni, sýnileg fókusrönd og virðing við reduced motion
  6. 06Hléhnappur á forsíðuborðanum ( 2.2.2) og sérstök aðgengisyfirlýsing
  7. 07Ljóst og dökkt þema sem fylgir stillingu tækisins, líka inni í kortasjánni

Í tölum

396
Forbirtar síður á tveimur málum
92
Fréttir fluttar af WordPress
52
Starfsmenn í starfsmannaskrá
166
Gamlar slóðir sem vísa rétt
63
Útgáfustýrðar gagnagrunnsbreytingar
24/7
Vöktun á kortaþjónum

Tæknistakkur

með forbirtum síðum, hýst á . með aðgangsreglum á hverri töflu. á hverri slóð, innskráning með . Kortasjáin keyrir á frá Esri; þjappar henni í eina 378 KB skrá sem er hýst á isor.is undir eigin . Kortagögn koma frá kortaþjónum ÍSOR. Meta Graph fyrir samtímabirtingu á Facebook og Instagram. Vöktun á klukkutíma fresti.

  • Next.js 16
  • React 19
  • TypeScript
  • Tailwind CSS v4
  • next-intl
  • Supabase Postgres
  • Supabase Auth (TOTP MFA)
  • Supabase Storage
  • pg_cron
  • TipTap
  • Anthropic Claude (Opus 5)
  • ArcGIS Maps SDK
  • esbuild
  • Resend
  • Vitest
  • Vercel

Skyld þjónusta

Tengd verk

(2)