Hoppa í aðalefni
02 / 06 · Ráðgjöf · Markaðsmál2026

manhattan.is

Út af Squarespace, yfir á eigin vef.

Yfirlit

Manhattan er markaðs-, stjórnunar- og ráðgjafarstofa í Reykjavík. Gamli vefurinn stóð á Squarespace-sniðmáti. Sá nýi er smíðaður frá grunni: ofan á , tvímála og sextíu og tvær forbirtar síður. Ráðgjafarnir halda sjálfir utan um verkefni, greinar og fyrirspurnir í stjórnborði á íslensku. Merkjavísir stofunnar er útfærður í kóðanum sjálfum, svo litirnir, letrið og mynstrið koma þaðan en ekki úr sniðmáti.

Ráðgjöf · Markaðsmál

Þetta er bara skjáskot, betra að skoða síðuna sjálfa: manhattan.is

Forsíðan, kynning stofunnar

Þetta er bara skjáskot, betra að skoða síðuna sjálfa: manhattan.is

Verkefni og vörumerki

Þetta er bara skjáskot, betra að skoða síðuna sjálfa: manhattan.is

Ráðgjafarnir

Þetta er bara skjáskot, betra að skoða síðuna sjálfa: manhattan.is

Greinar um markaðsmál

Þetta er bara skjáskot, betra að skoða síðuna sjálfa: manhattan.is

Hafa samband

Þetta er bara skjáskot, betra að skoða síðuna sjálfa: manhattan.is

Stefnumótun

Þetta er bara skjáskot, betra að skoða síðuna sjálfa: manhattan.is

Dökkur hamur

Áskorun

Vefurinn stóð á Squarespace-sniðmáti. Átján slóðir voru í loftinu. Fjórtán þeirra áttu sér enga samsvörun í nýrri uppbyggingu og hefðu orðið 404 við flutning, svo leitarvélastaða þeirra hefði tapast. Merkjavísir stofunnar komst aldrei alla leið inn í sniðmátið: dökkblátt, krem og fimm áherslulitir. Aðgangurinn var þó verri: enginn hjá Manhattan komst inn í AWS-reikninginn sem hélt utan um DNS lénsins. Til að breyta einni færslu þurfti að flytja allt svæðið.

Nálgun

með ofan á , á hverri töflu. Ekkert í vafranum talar við : innskráning, fyrirspurnir og allar breytingar fara um . Stjórnborðið krefst -auðkenningar og skiptir fólki í ritstjóra og stjórnendur. Merkjavísirinn er skrifaður sem Tailwind-tákn, þannig að einn áherslulitur ræður hverri síðu og enginn hluti geymir lit í sér. Gömlu slóðirnar fjórtán fengu fastar vísanir, hver á þá síðu sem svarar sömu spurningu, og nýjar vísanir bætast við úr stjórnborðinu. Aðgengið var mælt með axe-core á hverri slóð, í báðum tungumálum, báðum hömum og tveimur breiddum. Handskrifuð próf taka svo við þar sem axe sér ekki.

Niðurstaða

Sextíu og tvær forbirtar síður á tveimur tungumálum, í loftinu á . Ráðgjafarnir skrifa greinar og bæta við verkefnum sjálfir, og fyrirspurnir úr samskiptaforminu lenda bæði í pósthólfi og í stjórnborðinu. Vefumferð úr GA4 birtist inni í stjórnborðinu, svo enginn þarf sérstakan Google-aðgang til að sjá hvernig gengur. Aðgengisyfirlýsingin á /adgengi stendur á prófum sem hægt er að keyra aftur. Detti gagnagrunnurinn út má gefa vefinn út af frosnu afriti af efninu, svo útgáfa stöðvast ekki.

Hýsingarskráin

Verkefnið byrjaði á einni DNS-færslu sem enginn komst í. Þess vegna fylgir vefnum skrá inni í stjórnborðinu yfir hvar allt er hýst: , GitHub, , lénaskráning, tölvupóstur og mælingar. Hver færsla segir hvað þjónustan gerir, hver á reikninginn og hvernig næsti starfsmaður fær aðgang. Engin lykilorð og engir lyklar, bara leiðin inn. Þetta er ódýrasta tryggingin gegn því að stofan festist aftur úti.

Lykileiginleikar

  1. 01Tvímála vefur, íslenska sjálfgefin og enska á /en
  2. 02Gagnagrunnurinn hafnar hálfþýddri færslu, svo tungumálin haldast í takt
  3. 03Sextíu og tvær forbirtar síður, engin bið á fyrstu birtingu
  4. 04Stjórnborð á íslensku fyrir verkefni, greinar og fyrirspurnir
  5. 05Skyldu--auðkenning og hlutverk ritstjóra og stjórnanda
  6. 06Ritill með drögum og birtingu, myndir í
  7. 07Dökkur hamur sem man valið og blikkar ekki við hleðslu
  8. 08 2.2 AA, staðfest með axe-core og handskrifuðum prófum
  9. 09Vefumferð úr GA4 birt inni í stjórnborðinu
  10. 10Fjórtán fastar vísanir af gömlu Squarespace-slóðunum
  11. 11Eigandi kemur fólki aftur inn sjálfur þegar pósturinn bregst

Öryggi

  1. 01Ekkert í vafranum talar við , hvorki innskráning né gagnaköll
  2. 02Skyldu--auðkenning () á öllum aðgangi að stjórnborði
  3. 03Varaauðkenni skráð innan frá, aðeins þegar viðkomandi er þegar kominn inn
  4. 04Row-level security á hverri töflu, hlutverkið ræður hvað sést
  5. 05 lykillinn er notaður á þremur stöðum og hvergi í því sem birtist
  6. 06Aðgerðaskrá yfir það sem stjórnendur gera
  7. 07Ströng efnisregla (), og COOP á hverju svari
  8. 08Samskiptaformið ber hunangsgildru og fimm sendingar á klukkustund á hverja IP-tölu
  9. 09Reglan um persónuupplýsingar er í gagnagrunninum sjálfum: IP-tala og vafraupplýsingar hverfa eftir 90 daga, færslan eftir tvö ár
  10. 10Meta-pixillinn hleðst ekki fyrr en gestur samþykkir markaðsvafrakökur, og aðeins á léninu sjálfu
  11. 11Gögnin liggja í Stokkhólmi, innan

Aðgengi

  1. 01 2.2 AA staðfest á öllum slóðum með axe-core
  2. 02Hver slóð prófuð í báðum tungumálum, báðum hömum og tveimur breiddum
  3. 03Fókus aldrei falinn undir fastri stiku, staðfest með hnitaprófun (2.4.11)
  4. 04Sýnilegur fókus mældur við raunveruleg Tab-slög, ekki forritaða fókusfærslu (2.4.7)
  5. 05Endurflæði á 320 px og textastækkun í 200% (1.4.10 og 1.4.4)
  6. 06Birtuskil texta ofan á ljósmyndum mæld beint úr skjámyndinni (1.4.3)
  7. 07Hreyfing stöðvast þegar slökkt er á henni í stýrikerfinu (2.3.3)
  8. 08Röðun verkefna dregin með mús en líka færð með hnöppum, svo lyklaborðið dugir
  9. 09Opinber aðgengisyfirlýsing á /adgengi sem stenst prófin

Leitarvélar og flutningur

  1. 01Fjórtán fastar vísanir (308), hver á síðu sem svarar sömu spurningu og sú gamla
  2. 02Vísanir í gagnagrunni sem stjórnandi bætir við sjálfur, beitt í millilagi
  3. 03 og canonical á hverri síðu í báðum tungumálum
  4. 04 merkingar (MarketingAgency, Article, WebSite, BreadcrumbList)
  5. 05Facebook-síðan tengd úr fæti og skráð í sameAs, úr sama listanum
  6. 06sitemap.xml og robots.txt búin til úr efninu sjálfu
  7. 07-tilkynning fyrir Bing og Yandex
  8. 08Deilikort teiknuð með , sér kort fyrir hverja grein
  9. 09Berlénið er hið rétta og www vísar á það, svo sama síðan er ekki til í tveimur útgáfum

Í tölum

62
forbirtar síður
14
vísanir af gömlum slóðum
AA
WCAG 2.2, staðfest

Tæknistakkur

  • Next.js 16 App Router
  • React 19
  • React Compiler
  • TypeScript
  • Tailwind CSS v4
  • next-intl
  • Supabase Postgres
  • Supabase Auth (TOTP MFA)
  • Supabase Storage
  • TipTap
  • Resend
  • Upstash Redis
  • Google Analytics Data API
  • Vercel

Skyld þjónusta

Tengd verk

(2)