vefapp.is
Síðan okkar, Edda snjallmenni á Claude, vefsíðuskanni, kynningarsíða, bakendi með verkefnaumsjón og mínar síður fyrir viðskiptavini.
Yfirlit
Vefapp er vefur deildarinnar og um leið sýnishorn af því sem við smíðum. Að framan er hröð kynningarsíða, server-renduð á og tvímála. Undir henni liggur reksturinn. Edda, snjallmenni á , svarar gestum og tekur við fyrirspurnum. Á /skanna geta gestir látið skanna eigin vef. Bakendinn er varinn með tveggja þátta innskráningu og heldur utan um fyrirspurnir og verkefni. Viðskiptavinir hafa sínar eigin síður þar sem þeir sjá verkefnið, skiptast á skilaboðum og sækja skjöl.
Áskorun
Kynningarsíða stofu er oftast bara sýningargluggi og segir lítið um vinnuna sjálfa. Við vildum að okkar væri líka tólið sem rekur deildina. Að hún tæki við fyrirspurnum og þjónaði viðskiptavinum beint, ekki bara sýndi markaðsefni.
Nálgun
Almenni vefurinn er hljóðlátur. Server-rendað efni sem birtist strax og mjúk skipti milli yfirlits og dæmisagna. Edda situr innbyggð í síðunni og svarar á . Á /skanna líma gestir inn slóð og fá mat á hraða, leitarvélabestun, aðgengi og tæknistafla, með stuttri samantekt frá gervigreind. Bakvið er stjórnborð með tveggja þátta innskráningu þar sem fyrirspurnir, tilboð og verkefni lifa á einum stað. Viðskiptavinir fá aðgang að sínum síðum með einnota hlekk og sjá þar verkefnið, skilaboð og skjöl. Allt keyrir á og og er hýst á .
Niðurstaða
Útkoman er vefur sem er í senn kynning og vinnutól. Hann er hraður af því mestallt er þegar það kemur til lesandans, og hann styður vinnuna frá fyrstu fyrirspurn að afhentu verkefni.
Snjallmennið Edda
Heilsar
Edda er aðstoðarmaðurinn hér á vefapp.is, sérsmíðað snjallmenni sem svarar spurningum um þjónustuna okkar. Hún er knúin Anthropic Claude með þekkingargrunni yfir allt sem við bjóðum, svo hún getur útskýrt lausnir, vísað á réttu síðuna og komið þér í samband. Sama tækni og við smíðum fyrir viðskiptavini, hér á okkar eigin vef.
Prófaðu hana neðst í horninu á hvaða síðu sem er. Spyrðu „hvað kostar vefur“ eða „gerið þið netverslanir“ og Edda svarar á íslensku eða ensku, með beinum tenglum á réttu síðurnar.
Hún er lítið en lifandi tákn: andar, hugsar og skiptir um svip eftir samtalinu. Smelltu á svip hér að neðan til að sjá hann leika hann.
Núna: Heilsar · býður þig velkomna
Svona smíðum við snjallmenni →Lykileiginleikar
- 01Edda, snjallmenni á um allan vefinn sem svarar gestum og tekur við fyrirspurnum
- 02Vefsíðuskanni á /skanna: hraði, leitarvélabestun, aðgengi og tæknistafli með samantekt frá gervigreind
- 03Stjórnborð með tveggja þátta innskráningu fyrir fyrirspurnir, tilboð og verkefni
- 04Mínar síður fyrir viðskiptavini með einnota innskráningu, skilaboðum og skjölum
- 05Hröð og server-renduð kynningarsíða, mestallt við fyrstu birtingu
- 06Tvímála vefur á íslensku og ensku, hýst á
Snjallmenni, Edda
- 01Lifandi táknmynd sem heilsar og skiptir um svip meðan hún hugsar
- 02Svör frá sem streyma inn orð fyrir orð, þjálfuð á efni stofunnar
- 03Tekur við nafni og pósti og skráir fyrirspurn beint í bakendann
- 04Sendir samtalið áfram á sérfræðing þegar gestur biður um það
- 05Persóna og varnaglar stillanleg í stjórnborði
Vefsíðuskanni
- 01Gestur límir inn slóð og fær mat á nokkrum sekúndum
- 02Metur hraða, leitarvélabestun og aðgengi ()
- 03Þekkir tæknistaflann: , Wix, Shopify, Squarespace
- 04Stutt samantekt frá gervigreind með því sem helst má laga
Bakendi
- 01Tveggja þátta innskráning skylda á öllum aðgangi
- 02Eitt inn-hólf fyrir fyrirspurnir, tilboð og skilaboð frá Eddu
- 03Verkefni viðskiptavina á einum stað með stöðuvinnslu
- 04-tól: tilvísanir, 404-vöktun og sitemap
Mínar síður
- 01Innskráning með einnota hlekk, engin lykilorð
- 02Viðskiptavinurinn sér verkefnið sitt og stöðu þess
- 03Skilaboð fram og til baka við sérfræðingana
- 04Skjöl og skrár á vörðu svæði
Hraði
- 01Server-rendað alls staðar, mestur partur er við fyrstu birtingu
- 02Dæmisögur smíðaðar fyrirfram, ekkert gagnagrunnskall per heimsókn
- 03Hreint CSS filmukorn, engin þung myndaskrá send

Tæknistakkur
- Next.js 16.2
- Turbopack
- React 19.2
- React Compiler
- TypeScript
- Tailwind CSS v4
- next-intl
- View Transitions
- Supabase Postgres
- Supabase Auth (TOTP MFA)
- Anthropic Claude (Sonnet 5)
- Anthropic SDK
- Cheerio
- Resend
- Upstash Redis
- Server-Sent Events
- react-markdown
- ESLint 9
- Vercel



