Hoppa í aðalefni
Vefapp · HeimasíðugerðHeimasíða · Frá grunni

Heimasíða sem skilar sínu.

Við smíðum heimasíður fyrir fyrirtæki, stofnanir og einyrkja. Hver vefur er forritaður frá grunni á og hýstur hjá . Engin keypt þemu og engar viðbætur sem hætta að virka við næstu uppfærslu.

Nýjustu verkin

Öll verkin →
01 / 062026

Ríkisstofnun · Orkurannsóknir

isor.is

Nýr vefur ÍSOR, stærsta verkefni Vefapps til þessa: tvímála vefur ríkisstofnunar með eigin ritstjórnarkerfi, kortasjá og 92 fréttum fluttum af WordPress.

Forbirtar síður á tveimur málum
396
Starfsmenn í starfsmannaskrá
52
Gamlar slóðir sem vísa rétt
166
Skoða verkið →

Fyrir hvern

Heimasíða sem hentar rekstrinum

01

Lítil og meðalstór fyrirtæki

Eigið útlit í stað sniðmáts sem þúsund önnur fyrirtæki nota. Við byggjum vefinn utan um það sem reksturinn þarf og ekkert umfram það.

02

Einyrkjar og iðnaðarmenn

Rafvirkinn, hárgreiðslustofan og bókarinn þurfa ekki stóran vef. Ein skýr síða með þjónustu, verðhugmynd og símanúmeri dugar oftast.

03

Veitingastaðir og þjónusta

Flestir gestir skoða vefinn í símanum, oft á leiðinni. Matseðill, opnunartími, staðsetning og borðapöntun eiga að birtast strax.

04

Félög og samtök

Fréttir, viðburðir og félagatal á vef sem stjórnin heldur við sjálf. Enginn þarf að borga forritara fyrir hverja frétt.

Ferlið

Frá fyrsta fundi að opnun

01

Umfangið fyrst

Við förum yfir hvað vefurinn á að gera og hverjir nota hann. Áður en vinnan hefst liggur fyrir hvað verður smíðað.

02

Hönnun og forritun saman

Við hönnum og forritum í sama ferli, svo ekkert týnist á milli hönnuðar og forritara. Það sem þú samþykkir fer óbreytt í loftið.

03

Efni og prófanir

Við skrifum textann eða flytjum hann af gamla vefnum og prófum vefinn í símum og tölvum.

04

Opnun og rekstur

Vefurinn fer í loftið hjá með SSL og sjálfvirkri afritun. Eftir opnun vöktum við hann og uppfærum.

Það sem fylgir

Þetta fylgir hverri heimasíðu sem við smíðum, án aukagjalds.

01

Hröð hýsing á Vercel

Vefurinn keyrir á dreifineti í yfir 70 borgum. SSL-skírteinið endurnýjast sjálfkrafa og enginn vefþjónn þarf viðhald.

02

Hraði sem mælist

Vefirnir sem við skilum fá yfir 90 stig í Google PageSpeed. Síðurnar eru forgerðar á vefþjóni og myndir hlaðast eftir þörf.

03

Leitarvélabestun innbyggð

Fyrirsagnir í réttri röð, lýsingar, strúktúrgögn, sitemap og fylgja hverri síðu. Google les efnið rétt frá fyrsta degi.

Sjá leitarvélabestun →
04

Efni á íslensku og ensku

Vefurinn getur verið á báðum málum, með réttri -merkingu og canonical-slóðum. Erlendir gestir fá sama vef og innlendir.

05

Aðgengi samkvæmt WCAG 2 AA

Góð litaskil, full lyklaborðsstýring og stuðningur við skjálesara. Vefurinn nýtist öllum og stenst nýjar aðgengiskröfur.

Lesa um aðgengi →
06

Fast verð þegar hægt er

Þegar verkið er vel afmarkað bjóðum við fast verð, ekki tímagjald. Þú veist kostnaðinn fyrir fram og við berum áhættuna af áætluninni.

Algengar spurningar

Spurt og svarað um heimasíðugerð

Hvað kostar heimasíða?
Það fer eftir umfangi. Einföld kynningarsíða kostar allt annað en vefverslun eða kerfi með innskráningu. Þegar verkið er afmarkað bjóðum við fast verð, svo kostnaðurinn liggur fyrir áður en við byrjum.
Hvað tekur langan tíma að gera heimasíðu?
Einföld heimasíða tekur oftast nokkrar vikur, stærri verkefni lengur. Þú færð tímaáætlun um leið og umfangið liggur fyrir.
Þarf ég WordPress?
Nei. Við smíðum á , ekki . Þá eru engar viðbætur sem þarf að uppfæra og vefurinn verður hraðari og öruggari.
Get ég breytt efninu án ykkar?
Já. Þegar það á við fylgir einfalt stjórnborð þar sem þú breytir texta, myndum og fréttum. Starfsfólk ÍSOR skrifar til dæmis fréttirnar og heldur starfsmannaskránni við sjálft.
Sjáið þið um texta og myndir?
Já. Við skrifum textann eða lögum þann sem til er og göngum frá myndunum. Þú þarft ekki að eiga tilbúið efni til að byrja.
Kemst heimasíðan í leitarvélar?
Já. Hver síða er forgerð á vefþjóni með strúktúrgögnum, sitemap og lýsingum. Leitarvélabestun er hluti af smíðinni, ekki aukapakki.

Sjá einnig

Næst

Segðu okkur hvað heimasíðan á að gera.

Fáðu tilboð →